Fréttir

Útgefið efni

Facebook

Kynningarefni

Starfsskýrslur

40 ára afmæli fagnað á Hljóðbókasafni Íslands
18/05/2021
40 ára afmæli fagnað á Hljóðbókasafni Íslands

40 ára afmæli Hljóðbókasafns Íslands var fagnað með veglegri dagskrá 5. maí síðastliðinn. Vinir og velunnarar HBS fjölmenntu í húsakynni safnsins og þáðu léttar veitingar.

Góðir gestir ávörpuðu samkomuna: Menningar- og viðskiptaráðherra Lilja D. Alfreðsdóttir, Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagins, Øyvind Engh, forstöðumaður norska hljóðbókasafnsins NLB og Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur auk þess sem Marín Hrafnsdóttir forstöðumaður safnsins flutti ávarp.

Már Gunnarsson og Iva Marín Adrichem sungu nokkur lög en Hlynur Þór Agnarsson sá um tónlist að öðru leyti.
Í tilefni afmælisins hefur verið sett upp sýning um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi í húsakynnum safnsins að Digranesvegi 5 og hefur sýningunni verið sjónlýst fyrir blinda og sjónskerta.

Skip to content