Fréttir

Útgefið efni

Facebook

Kynningarefni

Starfsskýrslur

Kiwanisklúbburinn Katla gefur barnabókalestur 
10/06/2022
Kiwanisklúbburinn Katla gefur barnabókalestur

Kiwanisklúbburinn Katla hefur reynst Hljóðbókasafninu vel undanfarin ár. Katla hefur frá árinu 2016 styrkt innlestur á barna- og unglingabókum með reglulegu millibili. Kiwanismennirnir Ólafur Sigmundsson og Ásmundur Jónsson áttu fund með forstöðumanni HBS og deildarstjóra útlánadeildar þann 28. september 2021.

Í kjölfarið var ákveðið að Katla greiði innlestur á tíu barna- og unglingabókum á árinu 2022, alls tæplega hálf milljón króna. Nú þegar eru níu titlar komnir inn í safnið og sá tíundi er í lestri. Kiwanisklúbburinn Katla er svo sannarlega hollvinur Hljóðbókasafns Íslands og verður þeim seint fullþakkað.

Skip to content